Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Aðeins Trump viti áformin varðandi Íran

Aðeins Donald Trump Bandaríkjaforseti veit hver áformin eru varðandi Íran, segir Hvíta húsið, í kjölfar þess að Trump birti færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann sagði að heil siðmenning yrði þurrkuð út í kvöld, neiti Íranar að semja við Bandaríkin.Klerkastjórnin í Íran hefur til miðnættis, að íslenskum tíma, samkvæmt yfirlýsingu Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúa Hvíta hússins.J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna sagði fyrr í dag að Bandaríkjaher ætti verkfæri sem hann hefði ekki beitt hingað til. Hvíta húsið hafnaði því að Vance ætti við kjarnorkuvopn.Aðspurð hvort Trump væri reiðubúinn að nota kjarnorkuvopn sagði Leavitt blaðamönnum:„Aðeins forsetinn veit hver staðan er og hvað hann ætlar að gera.“
Aðeins Trump viti áformin varðandi Íran

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta