Björgunarsveitir landsins áttu annríkt langt fram á kvöld í gær við að aðstoða landsmenn sem lent höfðu í ógöngum í óveðrinu. Margvíslegt foktjón varð víða um land í hviðum gærdagsins, en björgunarsveitarmenn eru bjartsýnir á að lægðarspá morgundagsins feli ekki í sér álíka annríki.