Mikið hvassviðri gerði á Þórshöfn í nótt sem varð til þess að þakið fauk af Beitingahöllinni, gömlu húsi sem er að mestu í eigu sveitarfélagsins. Þakið fauk af, plötu fyrir plötu, og olli tjóni á nærliggjandi húsi Ísfélagsins.„Húsið skemmdist verulega í nótt. Það fór af því allt þakið og ekki í heilu lagi heldur nánast plötu fyrir plötu og olli skemmdum hinum megin við götuna á húsi sem Ísfélagið á,“ segir Björn S. Lárusson, sveitarstjóri Langanesbyggðar.Tjónið er töluvert og segir Björn að líklega þurfi að rífa húsið. Sveitarfélagið, ásamt tryggingafélögum, er að meta tjónið eins og er. Húsið er gamalt, byggt fyrir miðja síðustu öld og þjónaði áður sem beitingahús fyrir sjómenn. Það hefur tilfinningalegt gildi fyrir íbúa.Þrátt fyrir tjónið var björgunarsveitin ekki kölluð til en einhverji