Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kortleggja heilsufar danskra kvenna

300.000 danskar konur fá á næstu vikum boð í heilsufarskönnun Árósarháskóla. Markmiðið er að kortleggja heilsufar kvenna og verður könnunin sú umfangsmesta í Danmörku til þessa.Könnuninni verður beint að konum á aldrinum 35 til 60 ára. Spurningar verða í 11 mismunandi flokkum sem fjalla um þætti daglegs lífs, líkt og svefn- og lífsstílsvenjur, og fá þátttakendur annan spurningalista fimm árum eftir að þeir svara þeim fyrsta.Stór hluti heilsufarsrannsókna byggir á gögnum um karla, segir í tilkynningu forsvarsmanna könnunarinnar. Niðurstöðunum sé ætlað að tryggja bætta þjónustu við konur í danska heilbrigðiskerfinu.Pexels / cottonbro studio
Kortleggja heilsufar danskra kvenna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta