Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tveir fluttir með þyrlu eftir alvarlegt bílslys við Mývatn

Alvarlegt bílslys varð á hringveginum í Mývatnssveit síðdegis og tveir hafa verið fluttir á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. Annar þeirra er sagður alvarlega slasaður.Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst tilkynning um slysið klukkan 12:45. Þá hafði bíll farið út af hringveginum við Neslönd, norðvestan við Mývatn. Tveir voru í bílnum og þurftu viðbragðsaðilar að nota björgunarklippur til að ná öðrum þeirra úr bílnum. UMFERÐARTAFIR VIÐ MÝVATN Vegfarendum er bent á að ferðast um vegina sunnan- eða austan við Mývatn á meðan vinna á vettvangi stendur yfir, en lögregla er við störf á veginum norðan- og vestan vatnsins.Viðbragðsaðilar frá Þingeyjarsveit, Húsavík og Akureyri fóru á vettvang.Ekki hafa fengist frekari upplýsingar um líðan fólksins.Fréttin verður uppfærð.
Tveir fluttir með þyrlu eftir alvarlegt bílslys við Mývatn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta