Félagsmenn Sjómannafélags Íslands hafa boðað tvö verkföll í næstu viku. Formaður félagsins segir að tryggja verði stöðu íslenskra farmanna og bæta kjör hafnarverkamanna.Vinnustöðvunin tekur til Dettifoss, Brúarfoss og Selfoss, skipa Eimskipafélagsins, dagana tólfta til sextánda apríl. Samningar farmanna hafa verið lausir frá áramótum. VILJA TRYGGJA STÖÐUR ÍSLENSKRA FARMANNA Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Íslands, segir aðgerðirnar snúast um að hásetar og bátsmenn haldi vinnunni.„Það er nú aðallega það að við erum að reyna að tryggja stöður íslenskra farmanna þar sem útgerðin hefur í auknum mæli verið að ná sér í ódýrt vinnuafl og ýta okkar fólki, sem sagt Íslendingum eða mönnum á íslenskum kjarasamningum, af skipunum,“ segir Jónas.„Eimskipafélagið er með þrjú skip með Íslendi