Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Spyr hvort Framsókn ætti frekar að leita til vinstri

Í Þetta helst í dag er sjónum beint að stöðu Framsóknarflokksins í ljósi nýjasta þjóðarpúls Gallups sem var birtur á skírdag. Fylgi Framsóknarflokksins minnkar um nær tvö prósentustig milli kannana og stendur nú í 4,7 prósentum, en þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn mælist utan þings. Hann fengi engan mann kjörinn ef gengið yrði til kosninga nú.Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, segir stöðu Framsóknarflokksins, sem mældist í nýjasta þjóðarpúlsi Gallups utan þings, ekki líta vel út. Hann spyr hvort vænlegt sé fyrir flokkinn að setja upp „svolítið meira vinstra bros.“„Þetta er versta könnun sem Framsókn hefur fengið í sögunni hjá Gallup. Núna mælast þeir undir fimm prósent þröskuldinum. Það sem verra er fyrir Framsókn er að þeir mælast ekki með neinn kjördæmakosinn
Spyr hvort Framsókn ætti frekar að leita til vinstri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta