Bandaríkjaforseti virðist hóta kjarnorkustríði á hendur Íran í vanstilltri færslu á samfélagsmiðli. Þar fullyrðir hann að „heil siðmenning deyi út í nótt“. Hótunin tengist fresti sem forsetinn gaf Írönum að opna Hormússund og hann hefur ítrekað framlengt.