Margir sem höfðu samband við umferðarþjónustu Vegagerðarinnar í óveðrinu í gær virtust ekki hafa vitað af vegalokunum og nokkuð var um að fólki þótti að lokað væri að tilefnislausu. Lögreglan á Suðurlandi segir útköll hafa verið töluvert fleiri en síðast þegar gefin var út appelsínugul veðurviðvörun á Suðurlandi.„Fólk var mjög duglegt að leita sér upplýsinga og líka á umferðin.is. Það kom okkar fólki reyndar dálítið á óvart að fólk virtist vera minna meðvitað um fyrirhugaðar lokanir miðað við fréttaflutning af veðrinu,“ segir Sólveig Gísladóttir, sérfræðingur á samskiptasviði Vegagerðarinnar. TÓK LANGAN TÍMA AÐ LOSA BÍLA Á SUÐURLANDI Hellisheiði og Þrengslum var lokað um tíma og Hringvegurinn frá Markarfljóti að Öræfum var lokaður nær allan daginn.Flest verkefni viðbragðsaðila á Suðurla