Bresk stjórnvöld hafa bannað tónlistarmanninum Kanye West að koma til landsins. West átti að koma fram á tónlistarhátíðinni Wireless í Lundúnum í júlí. Búið er að aflýsa tónlistarhátíðinni. West hefur meðal annars lýst yfir gyðingaandúð og hrifningu á nasisma. WIRELESS AFLÝST VEGNA ÁKVÖRÐUNAR STJÓRNVALDA Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir innanríkisráðuneyti landsins að West hafi sótt um ferðaleyfi til Bretlands í gær. Ráðherrar hafa vald til að banna erlendum ríkisborgurum að koma til Bretlands ef viðurvist þeirra er ekki talin vera til almannaheilla. Ákvörðunin hafi verið tekin á þeim forsendum.West, sem gengur undir nafninu Ye, átti að vera aðalatriðið á tónlistarhátíðinni Wireless í Finnsbury Park í norðurhluta Lundúna þrjú kvöld í röð í júlí. Skipuleggjendur hátíðarinnar hafa t