Drengurinn sem varð fyrir bíl fyrir utan söluskála Olís í Varmahlíð er útskrifaður af gjörgæslu en mun liggja áfram á almennri deild. Þetta staðfesti Höskuldur B. Erlingsson, lögregluvarðstjóri á Blönduósi við fréttastofu RÚV.Drengurinn, sem er á fjórða aldursári, var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur eftir slysið og hefur verið á gjörgæslu síðan 30.marsMóðir drengsins, sem slasaðist einnig í slysinu, er útskrifuð af sjúkrahúsi en mun verða áfram undir eftirliti lækna. KOMNIR MEÐ GÓÐA MYND AF ÞVÍ SEM GERÐIST Höskuldur segir lögreglu komna með góða mynd af því sem gerðist þegar slysið varð og rannsókninni miði vel. Hún sé unnin í samstarfi Lögreglunnar á Norðurlandi Vestra og rannsóknarnefndar samgönguslysa.