Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bandaríkjamenn ráðast á Kharg-eyju

Bandaríkjaher réðist á fjölda skotmarka á Kharg-eyju, íranskri eyju sem liggur út af meginlandi Írans og er við Hormússund á Persaflóa.Embættismaður í Hvíta húsinu sagði við New York Times skömmu eftir árásirnar að ráðist hefði verið á hernaðarskotmörk á Kharg-eyju. JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, sagði að hans skilningur, eftir samtöl við yfirmenn Bandaríkjahers, væri sá að til stæði að ráðast á hernaðarskotmörk á eyjunni. „Ég held að við séum búnir að því.“CNN-fréttastofan segir að ekki hafi verið ráðist á olíuinnviði.Íranska fréttastofan Mehr sagði að „hinir bandarísk-zíónísku óvinir“ hefðu gert fjölda árása á Kharg-eyju og að fjöldi sprenginga hefði heyrst á eyjunni.Kharg-eyja spilar lykilhlutverk í olíuútflutningi Írana. Þar eru miklar olíubirgðastöðvar og olíuinnviðir.
Bandaríkjamenn ráðast á Kharg-eyju

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta