Fjarskiptafyrirtæki landsins byrja á morgun að loka 3G-fjarskiptakerfinu á höfuðborgarsvæðinu. Í framhaldi af því verður öllum 3G-kerfum á landsbyggðinni lokað í maí.Undirbúningur að lokun 3G-fjarskiptakerfisins hefur staðið yfir lengi og verður nú að veruleika. Það getur haft áhrif á fjarskipti fólks með eldri síma og síma sem keyptir eru erlendis.Búið er að setja upp sjálfvirkan símsvara sem fólk getur hringt í til að ganga úr skugga um hvort símar þess dugi áfram til neyðarsímtala eftir að 3G-kerfinu hefur verið lokað. Fjarskiptastofa og Neyðarlínan leggja áherslu á að fólk eigi ekki að hringja í 112 til að prófa sambandið því það getur valdið óþarfa álagi á neyðarþjónustu. Símnotendur sem hafa fengið SMS frá fjarskiptafyrirtæki sínu um að uppfæra eða skipta út símum sínum geta þess í s