Þrír byssumenn hófu skothríð nærri ísraelsku sendiskrifstofunni í Istanbúl í Tyrklandi rétt eftir klukkan tíu í morgun. Lögregla skaut einn til bana og handsamaði tvo, að því er borgarstjóri Istanbúl greindi frá.Tveir lögreglumenn særðust í skotbardaga við árásarmennina. Innanríkisráðherra Tyrklands segir stjórnvöld vita hverjir árásarmennirnir séu, tveir þeirra séu bræður og annar þeirri sé með dóm á bakinu fyrir fíkniefnamisferli.Breska ríkisútvarpið BBC hafði eftir bæði Reuters og APF-fréttaveitunni að engir ísraelskir embættismenn væru í Tyrklandi á þessari stundu, hvorki á sendiskrifstofunni í Istanbúl né í sendiráðinu í Ankara.Utanríkisráðuneyti Ísraels fordæmdi árásina og kallaði hana hryðjuverk. „Við erum þakklát tyrkneskum öryggissveitum fyrir skjót viðbrögð við árásinni. Ísraelsk