Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hlaut 13 ára dóm fyrir gróf kynferðisbrot gegn barnungri stjúpdóttur sinni og sambýliskonu

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á miðvikudaginn karlmann í 13 ára fangelsi, þar af átta fyrir sérlega gróf kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni þegar hún var sex til níu ára gömul.Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson héraðssaksóknari. Ofan á dóminn bætast fimm ár sem hann hlaut skilorðsbundið fyrir brot gegn móður hennar fyrir tveimur árum.Maðurinn var ákærður fyrir fjölda brota gegn stúlkunni, þar á meðal tólf brot sem falla undir lagaákvæði um nauðgun. Hann var að auki ákærður fyrir að hafa ítrekað áreitt stúlkuna kynferðislega.Hinn dæmdi hefur áður hlotið dóm fyrir ítrekuð og gróf kynferðisbrot. Fyrir tveimur árum var hann sakfelldur fyrir að brjóta á sambýliskonu sinni, móður stúlkunnar. Móðirin baðst vægðar fyrir hans hönd á sínum tíma og féllst dómarinn á að skilorðsbinda dóminn.Fátí
Hlaut 13 ára dóm fyrir gróf kynferðisbrot gegn barnungri stjúpdóttur sinni og sambýliskonu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta