Björgunarsveitir sinntu ýmsum verkefnum í óveðrinu í gær og voru 198 atvik skráð hjá björgunarsveitum og 21 aðgerð. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir að vel hafið gengið. Yfir páskahelgina voru skráð 490 atvik og 49 aðgerðir.„Ég hugsa að þessi helgi hafi ekki verið frábrugðin öðrum helgum þar sem veðurspáin er eins og hún var fyrir þessa helgi. Þetta er náttúrulega fríhelgi þannig að það eru fleiri á ferðinni en heilt yfir gekk þetta mjög vel,“ segir Jón Þór.328 manns sinntu verkefnum björgunarsveita víða um land í gær en 773 yfir alla páskahelgina. Helstu verkefnin í gær voru foktjón og fastir bílar.„Þetta snerist fyrst og fremst um að greiða leið fólks sem var í vandræðum milli byggðalaga yfir fjallvegi þar sem færðin var þung eða jafnvel alv