Akureyringar og aðrir á Norðurlandi bundu vonir við að Nice Air færi á flug sem fyrst en í svari félagsins til fréttastofu er sagt að það verði ekki fyrr en í fyrsta lagi í lok október. Ástandið í Mið-Austurlöndum hafi gert út um vonir um flug í sumar.Upphaflega átti að fljúga jómfrúarferð Nice Air 2.0, eins og Martin Michael framkvæmdastjóri kallaði hana, þann 19. febrúar. Hætt var við þá ferð sökum dræmrar eftirspurnar og í tilkynningu frá félaginu var tekið fram að meiri tíma þyrfti í undirbúning.Verið er að skoða hvort flogið verði beint frá Akureyri í haust en félagið er með fleiri áætlanir um flugferðir á öðrum stöðum í Evrópu og því ekkert staðfest í þeim efnum. Í tilkynningu frá félaginu var ýjað að því að það hefði ekki lagt árar í bát og stefndi á flug beint frá Akureyri á næstu