Áhöfnin í Artemis II leiðangrinum er á heimleið eftir sögulega ferð í kringum tunglið. Geimfararnir fóru lengra en nokkur manneskja hefur farið frá jörðu, sáu fjarhlið tunglsins og misstu allt samband við jörðu í um 40 mínútur. Áhöfnin sá einnig sólmyrkva. SKORUÐU Á ÞESSA KYNSLÓÐ OG ÞÁ NÆSTU AÐ SLÁ METIÐ FLJÓTT Geimfararnir Reid Wiseman, Christina Koch, Victor Glover and Jeremy Hansen fóru lengra út í geim en nokkur önnur mannvera, tæplega 407 þúsund kílómetra frá jörðu. Áhöfnin sló þar með met Apollo 13 þrettán leiðangursins sem hafði staðið síðan 1970.Rétt fyrir klukkan sex í gærkvöld að íslenskum tíma slógu geimfararnir metið.Sögulegum Artemis-leiðangri í kringum tunglið er lokið. Geimfararnir í Orion-farinu fóru lengra út í geim en nokkur manneskja, misstu samband við jörðina í stut