Borgarbúar eru sem fyrr óánægðir með kjörna fulltrúa sína, samkvæmt nýlegum Borgarvita Maskínu. Rúmlega helmingur telur borgarstjóra, meirihlutann í borgarstjórn og minnihlutann í borgarstjórn standa sig illa. Innan við fimmtungur telur þá hafa staðið sig vel.Niðurstöðurnar eru í samræmi við þróun sem sjá má í fyrri könnunum Maskínu sem kannað hafa afstöðu borgarbúa til borgarstjórnar frá því í desember 2022.Ánægja með borgarstjóra hefur á þessum tíma minnkað nokkuð jafnt og þétt. Hún hefur farið úr því að 28 prósent lýstu ánægju með störf Dags B. Eggertssonar í fyrstu könnuninni í árslok 2022 (og 25 prósent í lok borgarstjóratíðar hans) í að 17 til 23 prósent voru ánægð með störf Einars Þorsteinssonar og 16 til 20 prósent með störf Heiðu Bjargar Hilmisdóttur.Nú segjast 17 prósent ánægð me