„Kórstarfið er sterkur þáttur í menningu skólans og þátttakan í því hlýtur að nálgast Íslandsmet,“ segir Jóna Katrín Hilmarsdóttir, skólameistari Menntaskólans á Laugarvatni. Þar á bæ liggur hefðbundið skólastarf í láginni þessa viku vegna utanferðar kórs skólans.