Lögreglan á Vestfjörðum handtók einn eftir að upp komst um kannabisræktun í nágrenni Ísafjarðar í gær.Í tilkynningu segir að lögreglumenn hafi orðið varir við megna kannabislykt í eftirliti í gær. Þeir hafi rakið lyktina að húsi í nágrenninu og þegar þangað var komið kom í ljós að innandyra var „allnokkur“ kannabisræktun.Einn var handtekinn í kjölfarið og hin ræktuðu efni gerð upptæk ásamt ræktunarbúnaði.Lögreglumenn voru í eftirliti þegar þeir urðu varir við megna kannabislykt.Aðsent / Bartosz Kozik