„Ertu ekki búin að prófa að stíg´ann í botn?“ Spurði sessunautur minn gáttaður þar sem við dóluðum okkur eftir spænskum þjóðvegi. „Þú verður,“ sagði hann. Framundan var bein braut, brú yfir Pantá de Rialb uppistöðulónið svo nú var tækifærið. Ég herti takið um stýrið og stappaði pedalann niður í gólf.