Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Oddvitaskipti hjá Byggðalistanum

Eyþór Fannar Sveinsson, byggingafræðingur og kennari, verður oddviti Byggðalistans á Skagafirði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Jóhanna Ey Harðardóttir, fatahönnuður, fyrirtækjaeigandi og sveitarstjórnarfulltrúi, skipar annað sæti listans. Hún var oddviti flokksins fyrir fjórum árum. Sveinn Úlfarsson bóndi verður í þriðja sætinu.Byggðalistinn fékk tvo fulltrúa kjörna í síðustu kosningum. Hann hefur verið í minnihluta í sveitarstjórn.
Oddvitaskipti hjá Byggðalistanum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta