Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sósíalistar birta lista í borginni

Sósíalistaflokkur Íslands hefur kynnt framboðslista sinn fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Áður var búið að greina frá því að Silja Sóley Birgisdóttir stuðningsfulltrúi yrði oddviti listans og Sigrún E. Unnsteinsdóttir athafnakona í öðru sæti. Í framboðstilkynningu flokksins er lögð áhersla á að stofna Byggingafélag Reykjavíkur til að byggja ódýrt, gott og óhagnaðardrifið húsnæði sem standi öllum borgarbúum opið. Einnig er hvatt til þess að hætt verði að bjóða út akstur almenningssamgangna og að miðaverð verði lækkað.
Sósíalistar birta lista í borginni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta