Greina má vaxandi áhyggjur af stöðu efnahagsmála og ákall um aðgerðir í anda þjóðarsáttar til að bæta úr. Þetta kom fram í samtölum Morgunblaðsins við nokkra einstaklinga sem telja brýnt að ná samstöðu þegar atvinnuleysi er að aukast, verðbólgan mallar og vextir eru háir.