Stjórnendur fyrirtækja innan Félags atvinnurekenda og Samtaka iðnaðarins eru frekar neikvæðir en jákvæðir þegar kemur að því að ganga til viðræðna við Evrópusambandið. Ekkert þeirra félagasamtaka eða stjórnmálaflokka sem Heimildin hafði samband við treysti sér til þess að taka afgerandi afstöðu í ESB-umræðunni. Aðeins Samtök iðnaðarins og Félag atvinnurekenda hafa kannað hug sinna félagsmanna sérstaklega og þar er meirihluti andvígur...