Allhvasst verður um land allt framan af degi, allt að 20 metrar á sekúndu. Hiti gæti farið í tíu stig þar sem hann verður mestur, hlýjast verður norðanlands. Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld: Sunnan 13-20 m/s og rigning eða skúrir, en að mestu þurrt norðaustanlands. Hægari vindur í kvöld. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast norðanlands.Suðaustan 13-20 og rigning í nótt, fyrst suðvestantil. Heldur hægari sunnanátt með morginum og skúrir. Hiti breytist lítið.