Orðum prýddur fyrrverandi ástralskur hermaður var handtekinn í morgun. Hann er sakaður um að hafa myrt fanga meðan hann þjónaði í Afganistan 2009 til 2012. Ástralskir miðlar hafa nafngreint manninn sem Ben Roberts-Smith.Hann hlaut Viktoríukrossinn, æðstu orðu landsins, fyrir hugprýði á vígvellinum og er álitinn stríðshetja. Krissy Barrett, yfirmaður alríkislögreglunnar, segir að Roberts-Smith bíði fimm ákærur fyrir stríðsglæpi og morð fyrir að hafa ýmist sjálfur skotið mennina til bana eða skipað undirmönnum sínum að gera það. ÁSTRALSKIR MIÐLAR BÁRU ROBERTS-SMITH SÖKUM ÞEGAR 2018 Orðstír Roberts-Smith beið hnekki árið 2018 þegar hann í umfjöllunum ástralskra blaða var bendlaður við dráp á afgönskum föngum.Þar var staðhæft að hann hefði sparkað óvopnuðum almennum borgara fram af kletti o