JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, er á leið til fundar við ungverska forsætisráðherrann Viktor Orban. Tilgangur heimsóknarinnar er meðal annars að færa honum stuðningskveðjur frá Donald Trump forseta í aðdraganda þingkosninga næsta sunnudag.Viktors Orban gæti beðið ósigur á sunnudaginn eftir sextán ára valdatíð. Vance kveðst ætla að ræða sterk tengsl landanna tveggja við forsætisráðherrann ásamt því sem málefni Úkraínu og Evrópu verði ofarlega á baugi.Orban er hliðhollur Rússum og hefur ítrekað stöðvað liðsinni Evrópusambandsins við Úkraínumenn. Skoðanakannanir óháðra stofnana benda til stórsigurs Tisza-flokks Evrópusinnans Peters Magyar en þær sem hliðhollari eru ríkisstjórninni boða sigur Fidesz-flokks Orbans.Trump-stjórnin hefur af alefli lýst yfir stuðningi við leiðtoga flokka sem a