Íransher segist ekki ætla ekki að láta hótanir Bandaríkjaforseta um enn stórfelldari árásir koma í veg fyrir baráttu gegn herjum Bandaríkjanna og Ísrael. Donald Trump gaf Írönum frest til miðnættis að íslenskum tíma í dag til að opna Hormússund ella léti hann eldi og brennisteini rigna yfir landið. „Ef við vildum mætti tortíma hverri einustu brú og orkuveri Írans á fjórum klukkutímum,“ sagði Trump á blaðamannafundi í gær og gaf ekkert fyrir að slíkar aðgerðir gætu jafngilt stríðsglæpum. Hann sagði að ganga mætti milli bols og höfuðs á Írönum á einu kvöldi og það gæti orðið annað kvöld, það er að segja í kvöld. Íranar hafa hafnað vopnahléssamkomulagi við Bandaríkin og Ísrael með milligöngu Tyrkja, Egypta og Pakistana og Trump sjálfur sagði samninginn ekki fullnægjandi skömmu eftir að hafa l