Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fjögurra daga heimför Artemis að hefjast

Áhöfn Artemis II er á leið til jarðar að nýju eftir að hafa virt fyrir sér fjarhlið tunglsins. Stjórnstöð NASA í Houston náði sambandi við áhöfnina um miðnæturbil að íslenskum tíma eftir að það rofnaði í um það bil fjörutíu mínútur eins og við var búist meðan Orion-farið var handan tunglsins. Þá hafði áhöfnin farið lengra út í geim en nokkur mannvera önnur, eða tæplega 407 þúsund kílómetra. Það fyrsta sem tunglfarinn Christina Koch sagði var hve dásamlegt væri að heyra frá jörðinni á ný.Tunglfararnir fjórir lýstu í hörgul því sem fyrir augu þeirra bar á fjarhlið tunglsins, sem aldrei er sýnileg frá jörðu og hefur aðeins verið ljósmynduð af ómönnuðum förum. „Það lítur í raun út eins og lampaskermur með litlum nálargötum og ljósið skín í gegn,“ sagði Koch. „Þeir eru svo bjartir miðað við res
Fjögurra daga heimför Artemis að hefjast

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta