Dráp Ísraelshers á starfsmanni Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar verður til þess að engir veikir og særðir Palestínumenn verða fluttir til Egyptalands frá Gaza á hennar vegum þar til annað verður ákveðið.Framkvæmdastjórinn Tedros Adhanom Ghebreyesus greindi frá þessu á X. Ísraelskir hermenn skutu að sögn Al-Jazeera af handahófi á farartæki stofnunarinnar í Khan Younis, sem var að flytja almenna borgara milli staða.Ökumaðurinn lét lífið og læknir og sex farþegar særðust. Al-Jazeera segir atvikið hafa gerst nærri gulu línunni svokölluðu. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin kveðst ætla að fara ítarlega í saumana á málinu en frestar öllum flutningi sjúkra og særðra þangað til niðurstaða liggur fyrir.Heilbrigðisráðuneyti Hamas á Gaza segir að Ísraelsher hafi drepið á áttunda hundrað Palestínumanna frá þ