Antonio Guterrez aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvetur Bandaríkjastjórn til að hugsa sig að minnsta kosti tvisvar um áður en hún leggur til atlögu að innviðum í Íran. Hann sagði slíkar árásir almennt brot á alþjóðalögum og geta jafngilt stríðsglæpum.Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað Írönum eldi og brennisteini samþykki þeir ekki að opna fyrir siglingar um Hormússund fyrir miðnætti annað kvöld að íslenskum tíma. Trump orðaði það þannig að Íran yrði sprengt aftur á steinöld.Bresk stjórnvöld hafa boðað til fundar með yfirstjórn hersins á morgun, þriðjudag, til að ræða hvernig tryggja megi örugga siglingu um Hormússund þegar styrjöldinni í Íran lýkur. Um fimmtungur allrar olíu sem heimurinn þarfnast er fluttur um sundið á friðartímum, sem Íransher hefur nánast algerlega lokað