Um 250 eiginnöfn hafa bæst við mannanafnaskrá á síðustu tveimur árum og hafa aldrei verið fleiri á svo skömmum tíma. Fyrrverandi prófessor í íslenskum fræðum segir að þrátt fyrir tískubylgjur haldi Íslendingar gjarnan í hefðirnar í nafngiftum nýbura. TÓNLISTARMAÐUR OG ÁSTSÆL SKÁLDSAGNAPERSÓNA Á hverju ári gefur Þjóðskrá út lista yfir vinsælustu eiginnöfnin á Íslandi. Í fyrra voru það nöfnin Birnir og Matthildur sem báru höfuð og herðar yfir önnur fyrstu eiginnöfn nýbura, en 34 stúlkur fengu nafnið Matthildur og 33 drengir nafnið Birnir.En hvaðan koma þessi nöfn og hvað útskýrir vinsældir þeirra?„Ég ímynda mér að Birnir sé sótt í rapparann, eða tónlistarmanninn, sem mun vera mjög vinsæll. Ég varð nú að fletta því upp en ég er ekki svo mikið að hlusta á rapp,“ segir Guðrún Kvaran, málfræð