Íbúi í Fannborg í Kópavogi segir stórhættu hafa verið á ferðum í dag þegar þungar bárujárnsplötur fuku af vinnusvæði á nærliggjandi byggingar. Plöturnar hafi brotið rúðu og valdið öðrum skemmdum á íbúðabyggingum. Hann gagnrýnir verktaka og lóðarhafa harðlega fyrir að hafa ekki búið betur um svæðið fyrir óveðrið í dag.