Svefnherbergisrúða og svalaþil í húsi eldri borgara við Fannborg í Kópavogi urðu fyrir miklum skemmdum þegar bárujárn og annað brak úr ófrágengnu húsi sem verið er að rífa niður fauk utan í það. Svo virðist sem engar varúðarráðstafanir hafi verið gerðar til þess að koma í veg fyrir að brak úr húsinu fyki þrátt fyrir að gul viðvörun væri í aðsigi.