Rafmagni sló út víða á Suðurlandinu í kringum 20:00 í kvöld. Halldór Halldórsson, öryggisstjóri Landsnets, segir eldingu að öllum líkindum hafa slegið niður í Búrfellslínu. Vegna höggs á kerfið hafi varnarbúnaður leyst út rafmagni.Þá segir Halldór að unnið sé að því að byggja kerfið svo rafmagn komist á aftur. Það verði að vonum sem fyrst. Á vef Landsnets segir að truflunin sé að mestu yfirstaðin.Í viðtali við fréttastofu segist Halldór ekki vita til þess að truflunin hafi áhrif á fjarskipti. Fréttastofu hafa þó borist ábendingar um að farsímanet hafi dottið í Helgafellshverfi Mosfellsbæjar.Í tilkynningu á Facebook-síðu HS Veitna segir að rafmagnslaust sé á Keflavíkurflugvelli en unnið sé að bilanagreiningu. Flugstöðvarbyggingin er á varaafli.Heitavatnslaust varð í Vestmannaeyjum vegna raf