Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tíu ára frumkvöðull þrívíddarprentar hólka undir gjafir

Kári Halldór Sigurðsson, tíu ára strákur úr Kópavogi, hefur undanfarið selt þrívíddarprentaða hólka undir peningagjafir. Eftir að hafa selt leikjatölvuna sína og leikföng til að kaupa sér þvívíddarprentara, safnar hann nú fyrir öðrum. Foreldrar hans segja að þrívíddarprentarinn hafi verið í gangi nærri því allan sólarhringinn síðan Kári eignaðist hann í janúar.Þegar Kári fékk prentarann gerði hann samkomulag við foreldra sína um að hann myndi sjálfur safna fyrir og kaupa prentefni. Eftir að Kári hafði prentað hólka undir peningagjafir, á þeim árstíma sem flestir eru á leið í fermingar, var ákveðið að auglýsa þá til sölu. Hver hólkur er líka þraut, lítið völundarhús sem þarf að leysa til að opna og loka. Hann hefur þegar selt yfir 100 og hyggst safna sér fyrir öðrum prentara.
Tíu ára frumkvöðull þrívíddarprentar hólka undir gjafir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta