Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lesa til að losna fyrr úr fangelsi

Fyrrverandi forseti Brasilíu er einn þeirra sem nýta sér úrræði sem stendur brasilískum föngum til boða. Þeir geta stytt fangelsisvist sína með bókalestri. Fangar sem skrá sig til leiks í verkefnið og eru duglegir að lesa geta stytt fangelsisvist sína í annan endann í um allt að 48 daga á ári. Lestrarátakinu var ýtt úr vör 2012 og varð formlega hluti af öllum fangelsum í Brasilíu níu árum síðar. Verkefnið fékk enn meiri athygli þegar hæstiréttur landsins heimilaði fyrrverandi forsetanum Jair Bolsonaro þátttöku eftir að hann var dæmdur fyrir tilraun til valdaráns. Bolsonaro þarf þó að halda vel á spöðunum þegar bækurnar eru annars vegar því hann afplánar 27 ára dóm. Tugir þúsunda um alla Brasilíu nýta sér úrræðið.
Lesa til að losna fyrr úr fangelsi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta