Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mikill erill hjá björgunarsveitum í óveðrinu

Björgunarsveitir hafa sinnt margvíslegum verkefnum vegna óveðursins í dag. Hingað til hafa flest útköll verið á suðvestanverðu landinu þar sem veðrið hefur hingað til verið einna verst. Vegalokanir, foktjón og léleg færð eru helstu tilefni útkalla björgunarsveita það sem af er degi.Ökumenn lentu víða í vandræðum. Björgunarsveitir losuðu 10 til 15 bíla við Miðfell, austanvert við Þingvallavatn. Þó nokkuð margir á Þingvöllum komust ekki leiðar sinnar og björgunarsveitir fylgdu fólkinu til byggða.Einhverjir bílar, til dæmis húsbílar, voru skildir eftir, að því er fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.Fjöldi fólks lenti einnig í vandræðum í Þrengslum, á Hellisheiði og Kjósarskarðsvegi. Björgunarfólk á Mývatni var boðað út til að aðstoða við að losa um 7 bíla við Biskupshá
Mikill erill hjá björgunarsveitum í óveðrinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta