Geimfarar NASA fljúga umhverfis tunglið í dag, í fyrsta sinn í meira en hálfa öld. Flugið er hápunktur Artemis-leiðangursins sem hófst á miðvikudag. Flugið í kringum mánann tekur um það bil sjö klukkustundir, frá um korter fyrir sjö í kvöld að íslenskum tíma til um klukkan tvö í nótt. Geimfararnir sjá tunglið í heild og verða fyrstu manneskjurnar til að sjá svæði á tunglinu sem aðeins ómönnuð för hafa ljósmyndað.Orion-farið verður handan tunglsins rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld. Þá rofna samskipti við Artemis í um 40 mínútur. NASA varar við að myndgæði kunni að verða bágborin á stundum í ljósi fjarlægðarinnar, þeirrar mestu sem nokkur maður hefur farið frá jörðinni, eða 406.772 kílómetra.Hægt er að fylgjast með útsendingunni í spilaranum hér að ofan.