Íranar hafa hafnað vopnahléssamkomulagi við Bandaríkin og Ísrael. Ríkisfjölmiðill landsins, IRNA, greinir frá þessu.Samningamenn frá Pakistan ræddu við stjórnvöld í Íran og Bandaríkjunum í nótt og kynntu tveggja þrepa lausn í átt að friði. Tafarlausu vopnahléi yrði komið á og síðan yrði sest við samningaborðið.Í svari Írana, sem er í tíu liðum, hafi þeir hafnað vopnahléstillögunni og lagt áherslu á endanleg lok átakanna. Þeir vilji einnig regluverk um öruggar siglingar um Hormússund, bætur vegna skemmda á innviðum í landinu og afléttingu viðskiptaþvingana.Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf Írönum frest til miðnættis þriðjudagskvöld að semja um frið eða opna Hormússund, ella verði lagt til atlögu að orku- og samgönguinnviðum landsins. Trump sagði við fjölmiðla í Hvíta húsinu í dag að þetta