Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Samstarf Rásar 2 og Aldrei fór ég suður framlengt til fimm ára

Ríkisútvarpið og tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður undirrituðu samstarfssamning til næstu 5 ára á Ísafirði um páskana.Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður fór fyrst fram árið 2004 og hefur RÚV fylgt henni eftir frá upphafi. Í fyrstu var hátíðinni útvarpað á Rás 2, en í dag er tónlistarveislunni bæði útvarpað og sjónvarpað í heild sinni og voru bæði kvöld hátíðarinnar í beinni útsendingu.Útsendingarnar hafa notið vinsælda og eru orðnar fastur liður í páskahátíðarhöldunum hjá mörgum landsmönnum sem fylgjast með gleðinni á Ísafirði ár hvert.Hátíðin í ár tókst vel. Tugir listamanna kom fram og skemmtu bæði heimafólki og gestum, auk þeirra sem fylgdust með útsendingunni um land allt. Einmuna blíða var á Ísafirði og góð stemning bæði innan- og utandyra.„Aldrei fór ég suður er ein mikilvægasta
Samstarf Rásar 2 og Aldrei fór ég suður framlengt til fimm ára

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta