Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lilja Alfreðsdóttir tímabundið starfsmaður þingflokks Framsóknar

Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, er orðin starfsmaður þingflokksins á Alþingi. Starfið er tímabundið meðan annar starfsmaður er í veikindaleyfi. Lilja segir í samtali við fréttastofu að endurskipulagning flokksins sé í fullum gangi og að verk sé að vinna í þinginu. Hún sé að koma inn sem formaður og aðstoða þingflokkinn. Lilja Alfreðsdóttir er orðin starfsmaður þingflokks Framsóknarflokksins á Alþingi. Starfið er tímabundið.RÚV / Ragnar Visage„Við þurfum að fara af meiri þyngd inn í efnahags- og utanríkismálin.“Lilja telur reynslu sína sem þingmaður og ráðherra koma að góðum notum. Hún sat á þingi frá 2016 til 2024 og var á þeim tíma ráðherra fjögurra ráðuneyta.
Lilja Alfreðsdóttir tímabundið starfsmaður þingflokks Framsóknar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta