Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Skuggi J.K. Rowling vofir yfir nýjum þáttum um Harry Potter

„Ég leit alltaf á mig - það rosalega skrýtið að tala um þetta í þátíð - lít, eða leit, á mig sem Ravenclaw.“Ingunn Oddsdóttir er Potter-haus af hörðustu sort. Hún hefur verið aðdáandi síðan fyrstu bækurnar um galdrastrákinn fræga komu út og lesið þær ótal sinnum. Kvikmyndirnar fylgdu henni fram á fullorðinsár og hún safnaði Potter-varningi sem finna má upp um alla veggi á heimili hennar í Mosfellsbæ.En ekki lengur. Hún talar um sig sem aðdáanda í þátíð.Skoðanir höfundarins J.K. Rowling á trans fólki og réttindabaráttu þeirra rændu Ingunni gleðinni sem Harry Potter-veröldin færði henni í æsku. Æsku sem litaðist mjög af grimmilegu einelti.Í dag les Ingunn ekki bækurnar, horfir ekki á myndirnar, safnar ekki varningi lengur. Og hún ætlar meira að segja að láta þekja Harry Potter-flúrin sem hún
Skuggi J.K. Rowling vofir yfir nýjum þáttum um Harry Potter

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta