Stjórnvöld í Íran og Bandaríkjunum skoða friðartillögur í stríðinu þeirra í milli sem milligöngumenn kynntu í morgun. Þær eru sagðar geta komið á vopnahléi strax í dag. Reuters greinir frá því að samningamenn frá Pakistan hafi rætt við stjórnvöld í Íran og Bandaríkjunum í nótt og kynnt tveggja þrepa lausn í átt að friði. Tafarlaust vopnahlé yrði gert og síðan sest við samningaborðið. Samningsdrögin eru einnig sögð kveða á um að Hormússund verði opnað að nýju fyrir skipaflutninga. Ferðir olíuskipa þar um hafa nær alveg stöðvast síðan stríðið hófst og hefur olíuverð rokið upp á heimsvísu í kjölfarið. Þá er imprað á kjarnorkuáætlun Írana í drögunum og væntanlegri tryggingu um að Íranar framleiði ekki kjarnorkuvopn. „Öll atriði verður að samþykkja í dag,“ segir heimildarmaður Reuters. Eina sam