Yfirmaður leyniþjónustu íranska byltingarvarðarins var drepinn í árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran í morgun. Þetta kemur fram í yfirlýsingu byltingarvarðarins sem birtist á samfélagsmiðlinum Telegram.Majid Khademi tók við forystu leyniþjónustunnar síðasta sumar eftir að forveri hans, Mohammad Kazemi, var drepinn í 12 daga átökum Írans og Ísraels síðasta sumar.Ekkert útlit er fyrir að átökum linni á næstunni. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið Írönum frest þar til annað kvöld til að opna fyrir skipaflutning um Hormússund; annars ætli Bandaríkjaher að gjöreyða orkuinnviðum og brúm í Íran.Íranski herinn sagði að árásum á borgaralega innviði í Íran yrði svarað með reiðarslagi.Friðarumleitanir hafa litlu skilað til þessa. Heimildir bandaríska miðilsins Axios herma að litlar líkur s