Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Minnast mannskæðasta eldsvoða 20. aldar: Ólýsanlegur missir sem aldrei var hægt að nefna upphátt

Þann 30. desember 2025 voru 90 ár liðin frá einum mannskæðasta bruna Íslandssögunnar þegar eldur varð laus á jólatrésskemmtun barna í samkomuhúsinu Skildi í Keflavík með þeim afleiðingum að tíu manns létu lífið, þar af sjö börn.Fleiri hafa ekki farist í bruna á Íslandi, að vitað sé, síðan á Sturlungaöld. Margir hlutu alvarleg brunasár og þeirra beið löng sjúkralega. Missirinn var ólýsanlegur fyrir lítið samfélag og var atburðurinn lengi hjúpaður þögn.Dagný Maggýjar fjallar um brunann í Skildi í nýjum þáttum á Rás 1 til að minnast hinna látnu og varðveita söguna svo hún falli ekki í gleymsku. Þættirnir byggja á viðtalsbók sem Dagný tók við þá sem sóttu jólatrésskemmtunina. Sumir brenndust illa, aðrir misstu, margir komust undan og því má þakka hetjudáð einstaklinga sem lögðu líf og limi í h
Minnast mannskæðasta eldsvoða 20. aldar: Ólýsanlegur missir sem aldrei var hægt að nefna upphátt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta