Þegar er tekið að hvessa á landinu. Appelsínugul viðvörun verður í gildi frá hádegi á Suðvesturlandi, Suður- og Suðausturlandi auk hálendisins en gul viðvörun annars staðar frá því snemma morguns. Haraldur Eiríksson veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir þegar tekið að blása, veðrið verði býsna slæmt og kannski frekar óvenjulegt fyrir apríl.„Já, þetta er kannski meira svona eins og þorraveður. En þá kannski skiluðu lægðirnar sér illa en það er kannski meiri gangur í þeim núna.“ Vegum verður víða lokað og truflanir geta orðið á öðrum samgöngum, í lofti og á legi.„Það verður blástur í allan dag og í rauninni á morgun líka en hægari. Það eru ekki viðvaranir í gildi þá. Snjókoman sunnantil fer yfir í slyddu og rigningu síðdegis í dag og fyrir norðan verður þetta snjór fram á kvöld. Þar styt