Þegar tónskáldin Alexander Skrjabín og Níkolaj Rimskí-Korsakov sátu eitt sinn að snæðingi upphófst mikið rifrildi. Ástæðan? Liturinn á E-dúr. Báðir voru þeir gæddir svokallaðri samskynjun (e. synesthesia) og voru fyllilega sammála um að tóntegundin væri blá – spurningin var bara hvort hún væri djúpblá eins og safír eða fölblátt mánaskin. Við borðið sat einnig kollegi þeirra, Sergej Rakhmanínoff, grjótharður raunsæismaður sem fussaði hneykslaður yfir slíku andlegu bulli. Fyrir honum voru nótur einfaldlega nótur og ekkert annað. Hefði Víkingur Heiðar mætt í þetta sögulega matarboð hefði kvöldið vafalítið endað í slagsmálum. Hann er nefnilega líka með samskynjun, en ólíkt rússnesku meisturunum er E-dúr fyrir honum grænn.